17.9.2012 | 16:31
próf í íslensku
Vil benda á að skráning er hafin fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt í íslenskupróf sem stendur fyrir Námsmatsstofnun í desember 2012.
http://www.namsmat.is/atest/isl_prof_start.asp
______________________________________________________________
Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt
Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt verða næst haldin á vegum Námsmatsstofnunar í desember og er skráning hafin.
Prófin verða haldin á höfuðborgarsvæðinu 10.-14. desember og á eftirtöldum stöðum á landsbyggðinni: Akureyri 5. desember, Ísafirði 6. desember og Egilsstöðum 7. desember.
Skráning í prófin fer fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is, til og með 10. nóvember. Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur sem greiða skal í síðasta lagi 10. nóvember inn á reikning Námsmatsstofnunar. Upplýsingar þar að lútandi er að finna á vef stofnunarinnar.
Sjá nánar á vefnum www.namsmat.is. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550 2400 .
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.