13.5.2011 | 11:43
Fjölmenningardagur Reykjavíkur 14. maí
Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar verður haldinn hátíðlegur í 3ja sinn laugardaginn 14. maí. Markmiðið með hátíðarhöldunum er að fagna þeirri fjölbreyttu menningu sem borgarsamfélagið býður upp á. Dagurinn er skipulagður af mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar í samstarfi við samtökin Samhljómur menningarheima.
Jón Gnarr borgarstjóri setur hátíðina við Hallgrímskirkju klukkan 13.00. Að setningu lokinni fer fjölþjóðlega skrúðganga af stað og verður gengið frá Hallgrímskirkju niður að Ráðhúsi Reykjavíkur. Í kjölfarið verður svo haldin fjölþjóðleg hátíð í Ráðhúsinu þar sem boðið verður uppá fjölbreytta og lifandi skemmtidagskrá. Í Iðnó verður fjölþjóðlegur markaður þar sem kynntar verða vörur og handverk frá hinum ýmsu löndum.
http://reykjavik.is/Portaldata/1/Resources/skjol/frettir/Fjoelmenningardagur_2011.pdf
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.