9.3.2008 | 17:53
Verkamenn víðar en í Noregi
Það er erfitt að lesa svona fréttir um misnotkun á erlendum verkamönnum. Þó að fréttin sé norsk gæti hún allt eins hafa gerst hér á landi. Við þekkjum mörg dæmi um slæman aðbúnað, léleg laun, svindl á erlendu verkafólki og mikið vinnuálag. Sumir segjast hreinlega vera nútíma þrælar. Manni finnst skelfilegt að til sé fólk sem getur hugsað sér að misnota aðra í gróðasjónarmiði. Þetta er m.a. það sem Margmenningarfélagið berst gegn.
Markmið Margmenningarfélagsins eru þessi: að auðvelda tengsl erlendra íbúa og annarra í Borgarbyggð, að auðvelda erlendum íbúum aðgengi að upplýsingum um samfélagið, réttindi og skyldur, að vinna að auknum skilningi og virðingu fyrir ólíkri menningu og stulða að umburðarlyndi og fordómaleysi manna á meðal, og stuðla að því að allir fái notið hæfileikasinna til heilla fyrir sig og samfélagið.
Nú spyr einhver hvernig við vinnum í að ná þessum markmiðum. Við höfum gengist fyrir því að hafa opið hús fyrir þá sem vilja koma, boðið upp á ýmsa fyrirlestra og upplýsingar, skemmtanir ofl. og höfum reynt að túlka eftir þörfum, enda stjórnin skipuð fólki frá fimm löndum. Við höfum miðlað upplýsingum, veitt ráðgjöf og verið í samstarfi við RkrÍ og fleiri aðila sem vinna að málefnum innflytjenda.
Þessi bloggsíða er tilraun til að auka upplýsingagjöf og er ætlunin að blogga líka á öðrum tungumálum.
![]() |
Mútað með vodka og pítsu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.